Kærasti minn fær sér ristað brauð með osti – myndir

Það kæmi víst ekki mikið á óvart ef ég tæki upp á því að skýra frá matarræði kærastans, svo hrikalega heilaþvegin ku ég víst vera. Ef fólk spyr mig hvað ég ætli að gera um helgina á ég það til að svara með því að segja hvað við ætlum að gera og svona. Það er náttúrulega með ólíkindum lítið svalt.

Stórvinur minn, sambýlismaður og fyrrverandi frambjóðandi Framsóknarflokksins hann Ólafur Daði leikur æluhljóð í hvert skipti sem ég minnist á  betri helminginn minn, hann segir mig vera mesta svikahrapp einhleypingastofnsins.

Það er sjálfsagt margt til í því. En hófsemd og stilling hefur nú aldrei mitt sérsvið.

Ég á eins og áður í mestu vandræðum með þetta allt saman. En vonandi hefur mín háa elli fært mér einhvern þroska.

Ég hef til dæmis lært að fara alls ekki eftir innsæi mínu, tilfinningum eða frumhvötum þegar ég þarf að takast á við eitthvað sem mér finnst erfitt í tengslum við ástina. Það endar alltaf í mikilli vitleysu. Þess í stað reyni ég að skoða nýjustu rannsóknir um þessi máli, ligg þessa dagana yfir Journal of Marriage and Family  og leita að svörum við öllum mínum vangaveltum, og er til dæmis ýmsu fróðari um muninn á hamingju svartra og hvítra kvenna sem eru í óvígðri sambúð í Bandaríkjunum og svona. Það er aldrei að vita hvenær það gæti komið sér vel.

Af allt öðru þá er ég orðin mjög spennt fyrir Bókmenntahátíð Reykjavíkur sem byrjar í næstu viku. Það verður gaman. Ekki síst að sjá Davið Sedaris. Í kvöld hitti ég svo Hildi fr. og við ætlum að undirbúa fyrsta fund leshrings Satans. Kærastinn er ekki komin í þann klúbb þannig að það er aldrei að vita nema hér læðist inn ein og ein færsla þar sem ég minnist ekkert á hann. Hæpið en samt séns

4 ummæli

  1. Hörður
    31. ágúst 2009 kl. 15.52 | Slóð

    vá hvað þetta er emo mynd af Dodda, shiiiiiit

    Hvenær fæ ég svo David Sedaris bók að lesa!

  2. AJ
    14. september 2009 kl. 9.52 | Slóð

    Ég bara bíð eftir því að þetta samband fari í vaskin. Svona fyrst þú ert farin að blogga svona mikið um grey drenginn

  3. 14. september 2009 kl. 11.39 | Slóð

    Hörður: já stundum dettur hann í “ég-elska-bara-ungverskar-myndir-um-hraða-nútímaþjóðfélagsins-og-svona-myndir-þar-sem-leikstjórinn-leikur-sér-með-rýmið” -gírinn. Þá eru teknar af honum myndir

    AJ: úff já, ég verð að reyna að hafa hemil á mér

  4. 13. febrúar 2010 kl. 20.39 | Slóð

    what bands are good to see for emo hairstyles?
    emo hairstyles

Rita ummæli

Netfangið þitt verður ekki birt.