Já ég er svo mikið öskrandi rokk.Lítil börn og gamalmenni hræðast mig.Ég ota bara lím til eins og svona. Nei því miður. Eða ekkert endilega svo mikið miður. En þessa dagana vantar allt rokk í líf mitt enda haustin mikill annatími. Ég borða kvöldmat og fer svo að sofa. 2678585 lítrar af kaffi gætu ekki haldið mér vakandi framyfir tíu. En svo kemst ró á þetta og ég fer aftur að valda usla. Þangað til veld ég flestum vonbrigðum, eða alla vega öllum þeim sem vilja eitthvað með mig hafa seinnipartinn, þeir fá bara sljótt augnaráð og slef frá mér.En hlýtt slef og sumir aðstandendur mínir eru afskaplega þakklátir fyrir það hversu hljóðleg ég er skyndilega orðin.
En Edda sambýliskona, hún slær alltaf inn leitarorðin funny dogs þegar henni leiðist. Tilhugsunin um það hressir mig alltaf við. Það er svo krúttulegt. Hvað gerið þið?
Ein ummæli
Ég kalla bara á þig höhö