flutningur

Ji minn, ég var rétt nýbúin að flytja bloggið mitt þegar ég pakkaði bara niður búslóðinni og flutti mig og mitt hyski yfir í kommúnu í Norðurmýrinni. Í kvöld er ég að fara að sofa hérna í fyrsta skipti. Djöfull er nú leiðinlegt að flytja. Ég get svo svarið það að á meðan ég fyllti einn kassa spratt upp drasl í fimm í viðbót í íbúðinni minni. En hingað er ég komin og þetta verður svo glimmrandi fínt.

Ég gæti sjálfsagt haft mörg orð um ástandið, en ég þarf að finna girni. Ég gæti sjálfsagt haft enn fleiri orð um bömmera og lífið, en ég þarf að sjá hvort sængin mín hafi týnst. Það sem lagt er á mig.

3 ummæli

  1. 6. febrúar 2009 kl. 15.34 | Slóð

    Til hamingju með nýja bloggið þitt! það er svo hreint og fínt - eins og ný íbúð.

    Ætla að skora á þig í bloggleik
    mannstu eftir minningabókunum í gaggó? well hér er netútgáfan af því - copy og pastaðu atriðin 15 inn á síðuna þína, fylltu inn og skoraðu svo á tvo bloggara sem þú vilt vita meira um … æ stundum hefur maður ekkert við tíma sinn að gera (nema kannski ala upp börn en hver nennir því nú eiginlega?)

    1. Ég elska…
    2. Ég hata…
    3. Uppáhalds kvikmynd…
    4. Uppáhalds sjónvarpsþáttur…
    5. Uppáhaldsbók…
    6. Tónlist sem ég fíla…
    7. Uppáhaldsmatur og drykkur…
    8. Mér finnst merkilegt að…
    9. Ég huxa oft um…
    10. Mig hefur alltaf langað…
    11. Sérstakur staður…
    12. Vefsíður sem ég heimsæki daglega…
    13. Það er auðvelt fyrir mig að …
    14. Það er erfitt fyrir mig að…
    15. Ég myndi vilja hitta…

  2. gauti
    9. febrúar 2009 kl. 17.51 | Slóð

    er ekki oskrandi þversögn að tittla sjálfan sig hippahatar og flytja svo í kommúnu??

  3. Hörður
    30. maí 2009 kl. 13.14 | Slóð

    Hey

    afhverju bloggarðu aldrei lengur, mig langar í blogg, söknunarblogg um mig og svona!

Rita ummæli

Netfangið þitt verður ekki birt.