Á laugardaginn svaf ég lengur en nokkur á að gera. Eftir kvöldmat ætlaði ég að læra með heiði, en við höfðum svo margt að spjalla um að það varð ekkert svakalega mikið úr lærdómnum. Anna Hrund kom líka yfir og við tókum gott trúnó og þegar við sáum síðan að árshátíð Seðlabankans var ekki bara djók þurftum við náttúrulega aðeins að skammast yfir ástandinu.
Anna Hrund bauð okkur síðan í brunch morgunin eftir í kommúnunni hennar. Það var æði og eftir það trítlaði ég á kaffi Hljómalind þar sem Júlía Emm var að vinna og drakk þar Soja Latte í lítravís og las rótækar bækur um feminisma. Leið mjög vel og hugsaði: “jæja kannski verður bara fínt að vera svona öldruð”
Fór síðan og tékkaði á fréttunum og hélt að það væri loksins eitthvað að gerast. Beið síðan spennt fram á kvöld. En…
Ég er enn þá að bíða
-
Nýleg ummæli
Teljari
- Samtals
- 842 gestir
- 2,551 flettingar
- Vikan
- 64 gestir
- 95 flettingar
- Í dag
- 0 gestir
- 0 flettingar
- Samtals